Forsíða
Gisting
Afþreying
Umhverfisstefna
Kort og leiðarlýsing
Saga svæðisins
Umsögn gesta
Myndir
Hafðu samband
Tenglar
Guðrún Bergmann
Pistlar
Minningarsjóður
 

Skráning
á póstlista

Nafn  
Netfang  




English version 





Afþreying - í orku jökulsins

Jöklaferðir – Bókum í snjósleða- og/eða troðara- ferðir á Snæfellsjökul. Ferðir alla daga þegar verður leyfir, frá kl. 11 á morgnana og fram til 23 að kvöldi. Einungis tekur um 10-15 mín. að aka frá Hótel Hellnum upp á Jökulháls þaðan sem ferðirnar eru farnar.

Hestaferðir – Bókum í hestaferðir ýmist á sunnan- eða norðanverðu Nesinu, sem bjóða upp á reiðferðir um fjörur eða hraunbreiður. Hestaleigur eru í u.þ.b. 20 mín. akstursfjarlægð frá Hótel Hellnum.

Eyjasigling frá Stykkishólmi – Bókum í eyja- siglingu frá Stykkishólmi. Yfirleitt 2-3 ferðir á dag. Siglt framhjá fallegum eyjum með stórbrotinni landslagsmótun. Hægt að sjá fugla eins og lunda, skarf, ritu og haförn. Það tekur um klukkustund að aka frá Hótel Hellnum í Stykkishólm.

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull – Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er í næsta húsi við Hótel Hellnar á Hellnum. Þar er hægt að skoða frábæra sýningu um þjóðgarðinn og fræðast um dýralíf, gróðurfar og eldfjallasögu. Sjálf mörk þjóðgarðsins eru í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hótel Hellnum.

Gönguleiðir á Hellnum – Hótel Hellnar bjóða gestum sínum upp á gott gönguleiðakort af Hellnum og næsta nágrenni, meðal annars af hinni vinsælu gönguleið milli Hellna og Arnarstapa. Helstu staðir á Hellnum eins og Bárðarlaug, Laugarbrekka fæðingarstaður Guðríðar Þorbjarnardóttur og Maríulindin eru merkt inn á kortið.

Söfn á Snæfellsnesi – Á Snæfellsnesi eru mörg söfn. Á Hellissandi er Sjóminjasafn, í Ólafsvík svæðisminjasafn í Pakkhúsinu og Fiskarsafn með sjávarlífi Breiðafjarðar, í Grundarfirði er Sögumið- stöð, í Bjarnarhöfn er Hákarlasafn og í Stykkishólmi er Norska húsið.

Upplýsingar til gesta – Veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverðustu staðina til að heim- sækja á Snæfellsnesi. Bæklingar og aðrar upp- lýsingar eru í móttöku hótelsins og á herbergjum.



Hótel Hellnar • Hellnum • 356 Snæfellsbær