Forsíða
Gisting
Afþreying
Umhverfisstefna
Kort og leiðarlýsing
Saga svæðisins
Umsögn gesta
Myndir
Hafðu samband
Tenglar
Guðrún Bergmann
Pistlar
Minningarsjóður
 

Skráning
á póstlista

Nafn  
Netfang  










English version 


Hótel Hellnar
Brekkubæ, Hellnum
356 Snæfellsbæ
Sími: 435 6820



Sjá fleiri myndir












Lúxus í einfaldleika
- í orku jökulsins

Hótel Hellnar er heimilislegt sveitahótel sem hefur verið vottað af alþjóðlegu umhverfisvottunar-samtökunum GREEN GLOBE 21 sem umhverfisvænn gististaður frá árinu 2002. Hótelið er fyrsta fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Hótelið hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 2000 og aftur 2004, sem fyrirtæki innan Ferðaþjónustu bænda, sem vottað er af Green Globe 21. Smelltu hér til að sjá umhverfisstefnu okkar.

Fyrst álma hótelsins var byggð árið 1998 og nýjasti hluti þess árið 2004. Gisting í tuttugu 2ja manna herbergjum með uppbúnum rúmum, sér baði (wc/sturta) og sjónvarpi. Heimilislegar setustofur með sjónvarpi, myndbandstæki, DVD spilara, geislaspilarar og góðu bókasafni. Matsalur þar sem framreiddur er morgunverður (innifalinn í gistiverði) og kvöldverður. Hægt er að panta hádegisverð fyrir hópa. Stór hluti fæðunnar er úr lífrænt ræktuðu hráefni. Bjóðum upp á léttvín úr lífrænt ræktuðum vínberjum. Höfum einnig til sölu bjór og gosdrykki. Við erum við rætur Snæfellsjökuls og gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er í næsta húsi við okkur.

Hótel Hellnar er aðili að Ferðaþjónustu bænda og SAF, samtökum ferðaþjónustunnar á Íslandi.

SNÆFELLSNES – TÖFRAR ÍSLANDS

GESTGJAFI:
G
uðrún G. Bergmann, sem hefur verið rekstraraðili Hótels Hellna frá stofnun þess árið 2000, seldi hótelið í apríl 2010 til Hringhótels ehf., sem hafa tekið við öllum rekstri og gestgjafahlutverki á Hótel Hellnum.


Smelltu hér til þess að panta gistingu núna!





Hótel Hellnar • Hellnum • 356 Snæfellsbær