Afþreying
- í orku jökulsins
Upplýsingar til gesta
Veitum gestum okkar allar upplýsingar um áhugaverðustu staðina til að heim- sækja á Snæfellsnesi. Bæklingar og aðrar upp- lýsingar eru í móttöku hótelsins og á herbergjum.
Jöklaferðir
Bókum í snjósleða- og/eða troðara- ferðir á Snæfellsjökul. Ferðir alla daga þegar verður leyfir,
Einungis tekur um 10-15 mín. að aka frá Hótel Hellnum upp á Jökulháls þaðan sem ferðirnar eru farnar.
Gönguleiðir á Hellnum
Hótel Hellnar bjóða gestum sínum upp á gott gönguleiðakort af Hellnum og næsta nágrenni,
meðal annars af hinni vinsælu gönguleið milli Hellna og Arnarstapa.
Helstu staðir á Hellnum eins og Bárðarlaug,
Laugarbrekka fæðingarstaður Guðríðar Þorbjarnardóttur og Maríulindin eru merkt inn á kortið.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er í næsta húsi við Hótel Hellnar á Hellnum.
Þar er hægt að skoða frábæra sýningu um þjóðgarðinn og fræðast um dýralíf, gróðurfar og eldfjallasögu.
Sjálf mörk þjóðgarðsins eru í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hótel Hellnum.
Hestaferðir
Bókum í hestaferðir ýmist á sunnan- eða norðanverðu Nesinu, sem bjóða upp á reiðferðir um fjörur eða hraunbreiður.
Hestaleigur eru í u.þ.b. 20 mín. akstursfjarlægð frá Hótel Hellnum.
Eyjasigling frá Stykkishólmi
Bókum í eyja- siglingu frá Stykkishólmi. Yfirleitt 2-3 ferðir á dag. Siglt framhjá fallegum eyjum með stórbrotinni landslagsmótun. Hægt að sjá fugla eins og lunda, skarf, ritu og haförn. Það tekur um klukkustund að aka frá Hótel Hellnum í Stykkishólm.
Söfn á Snæfellsnesi
Á Snæfellsnesi eru mörg söfn. Á Hellissandi er Sjóminjasafn, í Ólafsvík svæðisminjasafn í Pakkhúsinu og Fiskarsafn með sjávarlífi Breiðafjarðar, í Grundarfirði er Sögumið- stöð, í Bjarnarhöfn er Hákarlasafn og í Stykkishólmi er Norska húsið.