Saga svæðisins
Bárður Snæfellsás
Nágrenni Snæfellsjökuls hefur alltaf verið sveipað dulmagni allt frá því Bárður Snæfellsás settist hér að fyrstur manna.
Bárður fæddist í norðurhluta Noregs, átti samíska móður sem var sjaman,
og var alinn upp meðal dverga í Dofrafjöllum í Noregi þar sem hann lærði galdra og forneskju.
Bárður laðaðist að þessu snævi þakta fjalli sem hann kallaði Snjófell.
Síðar breyttist nafnið í Snæfell og enn síðar í Snæfellsjökul,
þegar jökulheitinu var bætt aftan við það.
Jökullinn sjálfur er 1.446 m hár og undir hinni formfögru snjóbreiðu er virkt eldfjall.
Bárður settist að á Laugarbrekku á Hellnum (Forna-Laugarbrekka sem hægt er að ganga að frá Hótel Hellnum eða aka/ganga að frá Útnesvegi 574)
en á meðan hann byggði bæ sinn bjó hann í Sönghelli. Síðar notaði hann hellinn fyrir seremóníur með mönnum sínum.
Bárður lifði litskrúðugu lífi en þegar hann vildi ekki lengur búa meðal manna gaf hann allar eigur sínar og gekk
“inn í” Jökulinn. Í framhaldi af því varð hann í hugum fólks að anda Jökulsins og verndari þeirra sem ákölluðu hann.
Guðríður Þorbjarnardóttir
Á Laugarbrekku fæddist Guðríður Þorbjarnardóttir skömmu fyrir árið 1000.
Sem ung kona fluttist hún til Grænlands með foreldrum sínum.
Hún giftist Þorsteini syni Eiríks rauða en hann lést úr plágu.
Síðar giftist hún Þorfinni Karlsefni og fór með honum til Vínlands.
Þar ól hún soninn Snorra sem er talinn vera fyrsta barnið af evrópskum uppruna til að fæðast í Ameríku.
Fiskiver
Á utanverðu Snæfellsnesi voru helstu ver landsins og fólk sótti þangað á vorvertíðir
af öllu landinu, enda miðin kringum Snæfellsnes gjöful og stutt að sækja sjóinn.
Víða má finna tóftir sem sýna dvalarstaði vermanna eða íverustaði tómthúsafólks svo sem á Hellnum,
við Lóndranga, í Dritvík, í Bervík og við Gufuskála.
Skáld
Þekkt skáld hafa búið á utanverðu Snæfellsnesi og má þar nefna Kolbein Jöklaskáld,
Guðmund Stapakryppling, Sigurð Breiðfjörð og Steingrím Thorsteinsson.
Síðari tíma skáld og listamenn eins og Halldór Kiljan Laxnes, Gunnar Dal,
Þórður Halldórsson frá Dagverðará og Jóhannes Kjarval,
auk margra annarra hafa sótt andagift sína í orku Jökulsins.