English        e-mailhotel@hellnar.is
Opið frá 1 maí til 15 oktober
Book now
Powered by Booking.com
For group bookings send us request at hotel@hellnar.is
Hótel Hellnar tveggja manna herbergi
Hótel Hellnar -  Tveggja manna herbergi
Hótel Hellnar -  Setustofa - bar
Get Microsoft Silverlight
 

Gisting

Lúxus í einfaldleika - í orku jökulsins

Resturant Við bjóðum íslensla rétti með alþjóðlegum blæ.

Hótel Hellnar er heimilislegt sveitahótel sem hefur verið vottað af alþjóðlegu umhverfisvottunar-samtökunum GREEN GLOBE 21 sem umhverfisvænn gististaður frá árinu 2002. Hótelið er fyrsta fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi til að hljóta slíka vottun. Hótelið hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 2000 og aftur 2004, sem fyrirtæki innan Ferðaþjónustu bænda, sem vottað er af Green Globe 21

Fyrsta álma hótelsins var byggð árið 1998 stækkað 2004 og nýjasti hluti þess árið 2011. Gisting í þrjátíu 2ja manna herbergjum með uppbúnum rúmum, sér baði (wc/sturta) og sjónvarpi. Heimilislegar setustofur með sjónvarpi, myndbandstæki, DVD spilara, geislaspilarar og góðu bókasafni.

Veitingastaður þar sem framreiddur er morgunverður (innifalinn í gistiverði) og kvöldverður. Hægt er að panta hádegisverð fyrir hópa. Stór hluti fæðunnar er úr lífrænt ræktuðu hráefni. Bjóðum upp á léttvín úr lífrænt ræktuðum vínberjum. Höfum einnig til sölu bjór og gosdrykki.

Við erum við rætur Snæfellsjökuls og gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er í næsta húsi við okkur.

Hótel Hellnar er aðili að Ferðaþjónustu bænda og SAF, samtökum ferðaþjónustunnar á Íslandi