English        e-mailhotel@hellnar.is
Opið frá 1 maí til 15 oktober
Book now
Powered by Booking.com
For group bookings send us request at hotel@hellnar.is
Snæfellsjökull Snæfellsjökull gnæfir tignarlegur yfir umhverfinu og greinilega má sjá hvernig hraunstraumar og hraunfossar hafa runnið niður eftir hlíðum hanns.
Refur Heimskautarefur Eina villta landspendýrið sem var hér þegar land var numið er refurinn.
Bárður Snæfellsás Steinkarlinn Bárður Snæfellsás, eftir Ragnar Kjartansson.
Bláber - berjaspretta Á Hellnum og í þjóðgarðinum vaxa bláber, aðalbláber og krækiber og er góð berjauppskera þar síðsumars.
Get Microsoft Silverlight
 

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull

Undir Jökli

Landsvæðið vestast á Snæfellsnesi er oft nefnt undir Jökli Heillandi náttúra og merkar sögulegar minjar urðu til þess að þar var Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stofnaður 28. júní árið 2001. Jafnframt er markmiðið að auðvelda fólki að ferðast um svæðið og kynnast því. Hann er fyrsti þjóðgarður á Íslandi sem nær í sjó fram.

Sérstaða þjóðgarðsins felst í nálægðinni við sjóinn og samspili mannlífs og náttúru. Þjóðgarðar eru þjóðareign og er öllum frjálst að fara um þá, samkvæmt þeim reglum sem um þá gilda. Þjóðgarðsvörður sér um daglegan rekstur þjóðgarðsins í umboði Umhverfisstofnunar.

Yfir sumarmánuðina starfa þar landverðir við fræðslu, upplýsingagjöf, eftirlit og umhirðu. Skipulagðar gönguferðir eru nokkrum sinnum í viku.


Hér eru nánari upplýsingar um þjóðgarðinn á PDF-formi
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og friðlönd í nágrenninu

Gönguleiðir í þjóðgarðinum

Margar og fjölbreyttar gönguleiðir eru í og við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, og ættu allir að geta fundið leið við sitt hæfi. Sumar þeirra eru stikaðar eða merktar og flestar er auðvelt að rata. Hægt er að tengja gönguleiðirnar saman á ýmsan hátt.


Hér eru nánari upplýsingar um gönguleiðir í þjóðgarðinum á PDF-formi
Gönguleiðir í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli