Forsíða
Gisting
Afþreying
Umhverfisstefna
Kort og leiðarlýsing
Saga svæðisins
Umsögn gesta
Gestabók
Myndir
Hafðu samband
Tenglar
Leiðarljós ráðgjöf
Guðrún Bergmann
Pistlar
Minningarsjóður
 

Skráning
á póstlista

Nafn  
Netfang  




English version 

Snæfelljökull - Númer 1 á lista New York Magazine

Bandaríska tímaritið New York Magazine birti í október 2005 lista yfir þá tíu staði í heiminum sem ferðamenn eru sagðir VERÐA að skoða. Númer 1 á listanum er Snæfellsjökull en í undirtexta segir:

Upplifðu umbreytingarástand á toppi eldfjallajökuls - og skíðaðu svo niður.
Toppurinn á jökulbungunni Snæfellsjökli hefur kannski hlotið mesta frægð sem inngangurinn að iðrum jarðar í sögu Jules Verne Journey to the Centre of the Earth (Leyndardómar Snæfellsjökuls), en í dag er hann þekktari fyrir annað. Í um tíu mánuði ársins er hægt að skíða niður um tæplega 15 km langar skíðabrekkur sem enda í mosavöxnu hrauni sem tekur á sig hinar ótrúlegustu myndanir. Enn neðar er svo hægt að fylgjast með kríuvarpinu á Arnarstapa sem er aðalútgerðarhöfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hægt er að fara með skíðalyftu hluta leiðarinnar, en til að komast upp á topp er besta að fara með troðara eða snjóbíl. Örlítið ísklifur í lokin kemur þér svo á Til að ná efsta toppi þarf örlítið ísklifur í lokin. Dulrænir aðilar trúa því að frá Jöklinum streymi "orka" sem líkja má við Egypsku píramídana og Stonehenge. Hvort sem það er rétt eða ekki, þá kemur útsýnið af toppnum, endalausir fjallatoppar og öldutoppar manni í umbreytingarástand. Verne sagði: "Ómögulegt var að skynja með eigin augum hvar jörðin endaði og hafið tók við...ég varð alveg bergnuminn."

Í næstu níu sætum á eftir Snæfellsjökli eru (2) Yap í Míkrónesíu (3) Bray í Berkshire (4) Tokyo í Japan (5) Boca Paila á Yucatan skaga (6) Kerala í Indlandi (7) Glasgow í Skotlandi (8) Macao utan við Hong Kong (9) Kilimanjaro í Tanzaníu (10) Gobi eyðimörkin í Mongólíu.

Sjá nánar á:

http://www.newyorkmetro.com/

 

glacier
Snæfellsjökull eins og hann sést af hlaðinu á Hótel Hellnum


going to the top
Á leið á topp Jökulsins með snjótroðurum


Bardalaug
Bárðarlaug (á Hellnum) og Snæfellsjökull


wedding
Hr og frú Pho Duc giftu sig á Jöklinum á miðnætti 21/6 '04


nordurthufa
Norðurþúfan, annar af efstu tindum Snæfellsjökuls


on the top
Hópur vélsleðafólks á toppi Jökulsins


way to highest peak
Hæsti tindur Snæfellsjökuls klifinn

 




Hótel Hellnar • Hellnum • 356 Snæfellsbæ • s. 435 6820