English
version
Stefna okkar er:
Hótel Hellnar hafa skuldbundið sig til að veita
gæðaþjónustu í öruggu, umhverfisvænu
umhverfi þar sem lögð er áhersla á
að nota náttúruvæn byggingarefni og fylgja
stöðlum um umhverfisvænar byggingar. Við hvetjum
gesti okkar til að taka þátt í átaki
okkar til að vernda umhverfið með því
að veita þeim upplýsingar um starfsemi okkar
og benda þeim á hvernig þeir geta stutt við
umhverfisstefnu okkar. Við höfum verið vottuð
af alþjóðlegu umhverfisvottunarsamtökunum
Green Globe 21 frá árinu 2002. Starfsemi okkar er
árlega tekin út og endurvottuð. Ásetningur
okkar um stöðugar endurbætur í umhverfismálum
staðfestir skuldbindingu okkar gagnvart umhverfinu og tryggir
jafnframt viðskiptavininum að við séum að
starfa í samræmi við stefnu okkar.
Skuldbinding okkar er að:
• Ná fram traustri umhverfisstjórnun
í öllum þáttum starfseminnar.
• Fylgja að fullu eftir öllum lögum og reglum
um umhverfismál.
• Draga úr mengun og úrgangi með því
að endurnýta, endurvinna, spara orku og vatn og nota
umhverfisvottaðar vörur.
• Gera árlegar úrbætur á öllum
helstu þáttum rekstursins sem snúa að
stöðlum GREEN GLOBE 21.
• Tryggja, þar sem því verður við
komið, að allar vörur og efni sem notuð eru
á hótelinu séu af náttúrulegum
uppruna, séu umhverfismerktar eða með upprunavottorð,
þannig að áhrif af notkun þeirra séu
engin eða í algjöru lágmarki.
• Nota öll tækifæri sem gefast til að
vinna með öðrum í ferðaþjónustu,
félagasamtökum, sveitastjórnum eða ríkisstjórnum
og almenningi í samfélagi okkar að því
að efla meðvitund um umhverfið.
• Veita öllum starfsmönnum þá þjálfum
og þekkingu sem þarf til að ná markmiðum
okkar.
• Leita stöðugt að frekari þekkingu
um sjálfbæra þróun almennt og flytja
þá þekkingu áfram til starfsmanna,
gesta og annarra.
• Ræða opinskátt um stefnu okkar og umhverfisstjórnun
við gesti og aðra áhugasama aðila.
• Nota vörur framleiddar á svæðinu
sem við búum á þar sem því
verður við komið.
• Ráða einstaklinga frá okkar svæði
til starfa eða einstaklinga sem koma frá svæðum
þar sem ríkir atvinnuleysi.
• Endurmeta stöðugt alla þætti rekstursins
til að tryggja að bestri frammistöðu sé
ávallt náð í öllum þáttum
hans.
• Taka Umhverfisstefnuna til árlegrar endurskoðunar.
• Draga úr hættu á neyðartilvikum
með því að stunda reglubundið viðhald
á eignum og með því að æfa
viðbrögð við neyðartilvikum, komi þau
upp.
Upprunalega gerð
í mars 2000
Síðast endurskoðuð í júlí
2008
- Guðrún G. Bergmann
Umhverfisstjórnunarstefnu okkar framfylgjum við meðal
annars með því að velja timbur til bygginga
úr skógum sem eru endurplantaðir, nota umhverfisvæn
byggingarefni innandyra, umhverfisvæna málningu,
olíu í stað lakkefna (lakkefni erta slímhúð
í öndunarfærum), náttúruleg efni
í gólfdúkum, spara orku á ýmsan
máta, nota umhverfismerkt hreinsi- og þvottaefni
og trefjaklúta til þrifa. Sápa og sturtusápa
í herbergjum er umhverfismerkt. Salernispappír er
úr endurunnum pappír. Einnig vinnum við markvisst
að orkusparnaði og endurnýtingu, auk þess
að vera með græna innkaupastefnu.
Green Globe
21 eru samtök sem votta ferðaþjónustufyrirtæki
um allan heim sem stunda sjálfbæran rekstur. Hugmynd
að stofnun samtakanna kviknaði í kjölfar Ríó
ráðstefnunnar 1992 þar sem skrifað var undir
Dagskrá 21 en Staðardagskrá 21 er byggð
á 28. kafla hennar. Green
Globe 21 var síðan stofnað með
stuðningi Alþjóðaferðamálaráðsins
og Alþjóðaferðamálasamtakanna árið
1994. Á undanförnum árum hefur orðið
mikil þróun innan Green
Globe 21 og hafa samtökin nú staðla
til að geta vottað tæplega þrjátíu
mismunandi greinar ferðaþjónustunnar, auk þess
sem þau votta samfélög og einstaka áfangastaði
ferðamanna. Green Globe 21
eru einu vottunarsamtökin í heiminum sem votta samfélög.
Green
Globe 21 er sjálfseignarstofnun
sem er í samstarfi við tæplega tuttugu háskóla
í Ástralíu þar sem starfa yfir 200
aðilar sem gera ekkert annað en rannsaka ferðaþjónustu
og sjálfbæra þróun hennar. Hafa þessir
rannsóknarmenn lagt grunninn að stöðlumGreen
Globe 21 sem eru byggðir á
Staðardagskrá 21. Green
Globe 21 nýtur alþjóðlegrar
viðurkenningar og starfar nú í yfir 50 þjóðlöndum
í öllum heimsálfum.
Þeir sem leita eftir vottun frá Green
Globe 21 ganga í gegnum þríþætt
ferli:
A – Aðild (Affiliate):
Green Globe
21 býður upp á félagsaðild
sem veitir upplýsingar um sjálfbæra þróun
og hjálpar fyrirtækjum að skilja hvernig viðmið
og vottun Green
Globe 21 virka og hvernig hægt er
að ná þeirri stöðu.
B – Viðmið (Benchmarked):
Næsta skref er að fyrirtæki hefji mælingar
til að bera árangur sinn saman við viðmið
Green Globe
21 óháð fullri vottun.
Þau fyrirtæki sem hafa staðist þennan samanburð
mega nota Green
Globe 21 merkið án haksins til
að auglýsa starfsemi sína með.
C – Vottun (Certified):
Fyrirtæki sem uppfylla allar þær kröfur
sem fyrirtækjastaðlar Green
Globe 21 gera og hafa hlotið vottun
að undangenginni úttekt á staðnum, sem gerð
er af viðurkenndum þriðja aðila, hafa fullt
leyfi til að nota Green
Globe 21 merkið með hakinu til
að koma á framfæri árangri sínum
í umhverfis- og samfélagsmálum.
Hólaskóli er umboðsaðili
Green Globe 21á
Íslandi. Aðilar innan skólans veita leiðbeiningar
ef fyrirtæki hafa áhuga á að fara inn
í vottunarferli Green Globe
21. Nánari upplýsingar er að
finna á www.holar.is/greenglobe21
eða hjá Kjartani Bollasyni sérfræðingi
í umhverfismálum sem starfar á Hólum.